Nutella muffins m/Kinder Bueno kremi

Untitled

Sko . . Þessar muffins eru þær allra bestu sem ég hef smakkað. Ég gæti hafa sónað út og farið til himnaríkis í smá stund, svo góðar eru þær. Ég gæti mögulega borðað kremið eintómt uppúr skálinni líka. Með skeið. Allavega, ef þið eruð miklir sælkerar þá mæli ég með þessum og ef þið eruð forfallnir Kinder Bueno aðdáendur líkt og ég. Þessi uppskrift býður uppá ca. 8 muffins, sem var alveg nóg í mínu tilfelli en ég myndi tvöfalda ef þið ætlið að baka fyrir einhverja veislu.

efw

Uppskrift:

  • 200 gr nutella (eða hvaða súkkulaðihnetusmjör sem er).
  • 2 meðalstór egg
  • 100 gr hveiti
  • 1/3 bolli hakkaðar hesilhnetur.

Byrjið á því að setja nutella í hrærivélaskál + eitt egg og hrærið vel. Bætið síðan síðari egginu við og hrærið. Næst sigtaði ég hveiti og hellti út í ásamt hnetunum. Lét þetta hrærast smá saman og skellti síðan deiginu í muffinsform. Þetta bakast við 200°c í ca 12 – 15min, best er að stinga gaffli í þær og ath hvor þær séu tilbúnar.

sdddf

Krem:

  • 125 gr íslenskt smjör við stofuhita
  • 3-4 msk nutella (ég notaði súkkulaðihnetusmjör frá Nusco í kremið)
  • 70 gr flórsykur (sigtaður)
  • 2 msk kakó
  • 2 tsk vanillusykur
  • 1 Kinder Bueno súkkulaðistk (niðursaxað)

Byrja á því að hræra smjörið þar til það er orðið slétt og síðan má bæta öllu hinu út í. Hrærið vel þar til engir kekkir eru og allt vel blandað saman. Kremið er sett á þegar kökurnar eru kólnaðar og ég skreytti svo með hesilhnetuflögum og Kinder Bueno súkkulaði.

zzVerði ykkur að góðu

– erlaguðmundsdóttir

Ekta Ítalskt brauð & Ómótstæðilegar Mars og Rolo brownies

Um helgina komu inn tvær nýjar uppskriftir inná http://www.bleikt.is 

Annars vega uppskrift af uppáhalds ítalska brauðinu mínu sem má nálgast hér „Hér“ 

10588611_538620696263908_1784395008_n

 

og hinsvegar uppskrift af unaðslegar rolo og mars brownies sem brádna hreinlega í munninum en hana má finna „Hér

 IMG_20140728_182830

 

– erlaguðmundsdóttir

Rice Krispies kaka m/maltersesrjóma – bleikt.is

IMG_20140728_231030

Uppskrift af þessari dásemd var að detta inn á bleikt.pressan.is og má finna uppskriftina með því að klikka á Rice Krispies kaka m/ maltersesrjóma . Þessi kaka sló í gegn hjá fólkinu mínu og mun ég hiklaust skella í eina svona aftur. Mæli með að þið prufið.

– erlaguðmundsdóttir

Gulrótamöffins

IMG_20140717_210306

 Gulrótamöffins eru ein af mínum uppáhalds. Þetta er hinsvegar í fyrsta skiptið sem ég geri þær frá grunni, hef alltaf svindlað og keypt pakka möffins í Bónus (btw sjúklega góðar). Ég fann loksins uppskrift sem svipar til þeirra, mjúkar að innan og bragðgóðar.

Uppskrift:

  • 250 gr hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 3 tsk kanil
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk salt
  • 150 gr sykur
  • 150 gr púðursykur
  • 3 egg
  • 100 ml olía
  • 2 tsk vanillusykur
  • 1 bolli rifnar gulrætur

Blandið hveiti, lyftidufti,kanil,matarsóda og salti saman með sleif í sér skál. Í hrærivélaskálina er skellt sykri, púðursykri, eggjum og olíu, og það hrært vel saman. Þegar sú blanda er orðin slétt og fín þá er fyrri blöndunni (hveitinu og öllu því) blandað hægt og rólega saman við. Síðast er gulrótunum skellt út í og hrært örlítið saman við. Þá er deigið klárt og þessu skellt í möffinsform og inn í ofn á 180°c og blæstri í ca. 15 – 20min.

IMG_20140717_211032

Síðan til þess að toppa gulrótamöffins þá þarf krem og hef ég ekki enn fundið krem sem toppar fröken Betty Crocker og vanillukremið hennar. Ég svindla alltaf og nota það á gulrótamöffins eða gulrótaköku. Ég ætla hinsvegar að henda inn uppskrift af kremi sem mér fannst mjög gott, en annars mæli ég hiklaust með kreminu frá Betty, það klikkar seint.

IMG_20140717_212152

Krem:

  • 250 gr rjómaostur (Philadelphia eða MS)
  • 50 gr mjúkt íslenskt smjör
  • 2 tsk vanillusykur
  • 150 gr flórsykur

Hrærið rjómaostinn og smjörið vel saman eða þar til það er orðið slétt og fínt. Bætið síðan við vanillusykrinum og flórsykrinum. Mér finnst mjög gott að sigta flórsykurinn í skál áður en ég set hann út í svo það verði ekki mikið um kekkji.
Gott að skreyta svo með hesilhnetuflögum því þær passa hrikalega vel með gulrótamöffins.

 IMG_20140717_205050

Verði ykkur að góðu

erlaguðmundsdóttir

Oreoostakaka

Image

Ókei. Þetta er seinasta Oreouppskriftin í bili, ég lofa. Eða svona næstum því. Oreo er bara svo hrikalega gott. Allavega þá var fjölskylduættarmót hjá mömmu ætt um helgina og var smá kaffihlaðborð á sunnudeginum hjá okkur. Ég ákvað því að baka smá bombu fyrir fólkið. Ég hef aldrei verið mikið fyrir ostakökur þar til ég fór að prufa að gera þær sjálf og troða öllu í þær sem mér finnst gott. Í þetta skipti ákvað ég að prufa að gera ostaköku með Oreo. Surprise. Ég notaði uppskrift af venjulegri ostaköku í grunninn en svo mixaði ég fullt af öðru saman við, þannig ég vissi í raun ekkert hvort þessi kaka myndi heppnast. En hún gerði það svo sannarlega, kláraðist strax, enda alveg hrikalega góð. Ég get ekki annað en mælt með henni í kaffinu, best er að gera hana kvöldið áður og geyma inn í ísskáp yfir nóttina. Eða um morguninn og taka hana út um kvöldið.

Botn:

  • 1 kassi af Oreo eða 16 Oreokexkökur
  • 150gr íslenskt smjör (brætt)

Ég byrjaði á því að setja Oreokexið á fullt í matvinnsluvél. Þegar það er klárt þá bætti ég  smjörinu við og lét það blandast vel saman í matvinnsluvélinni. Því næst klippti ég út smjörpappír og setti í botninn á hringlaga formi. Þetta gerði ég svo það yrði auðveldara að losa kökuna úr forminu. Þá er bara eftir að þrýsta kexinu vel í botninn, passa vel að fylla í öll göt. Svo er þessu skellt inn í ísskáp á meðan að þið gerið fyllinguna.

Fylling:

  • 225gr hreinn rjómaostur
  • 250ml rjómi (þeyttur)
  • 2tsk vanillusykur
  • 4tsk kakó
  • 4tsk nutella (má sleppa)
  • 6 oreokexkökur (saxaðar smátt niður)

Ég byrjaði á því að hræra rjómaostin vel saman eða þar til hann var orðin sléttur og fínn. Setti hann svo í aðra skál á meðan ég þeytti rjómann og bætti svo rjómaostinum saman við það. Því næst er vanillusykrinum, kakóinu og nutellanu bætt út í og hrært smá. Seinast fer svo oreokexið út í, en ég saxaði það frekar smátt áður. Þá er fyllingin klár og ekkert eftir nema að hella henni ofan á botninn. Þetta er svo kælt í minnst 4klst en eins og ég nefndi hér fyrir ofan þá finnst mér betra að geyma hana yfir nótt. Ég bræddi líka saman súkkulaði og rjóma í potti og skreytti með teskeið og saxaði síðan oreokex og skar til helminga í skreytingu.

 

Image

Image

Verði ykkur að góðu

– erlaguðmundsdóttir

Skinkuhorn m/ sesamfræjum.

Image

Ég baka þessi skinkuhorn reglulega. Ég er samt ekki mikið fyrir svona brauðmeti en finnst rosa gott að smakka eitt og eitt. Kærastinn minn er hinsvegar er sjúkur í þessi horn, þau eru oftast horfin eftir svona 10 – 15 min og ekki sést það samt á honum. Ákvað að skella inn uppskrift af þeim þar sem margir eru búnir að spyrja um þau og vona ég að þau standist undir væntingum.

Uppskrift:

  • 450gr hveiti
  • 30gr íslenskt smjör við stofuhita
  • 50gr sykur
  • 1tsk salt
  • 12gr pressuger
  • 250ml mjólk

Image

Image

Ég byrja á því að hella mjólkinni í sér skál og bæti pressugerinu síðan við, læt það kraumast aðeins. Á meðan set ég allt þurrefnið í hrærivélaskálina og blanda því örlítið saman með sleikju áður en ég bæti við smjörinu. Mér finnst best að taka smjörið út kvöldið áður og geyma það á eldhúsborðinu, þá er það orðið vel mjúkt fyrir baksturinn daginn eftir. Þegar þetta hefur allt blandast ágætlega saman þá bæti ég við mjólkinni og gerinu, saman við deigið og læt það hnoðast í hrærivélinni. Ef deigið er frekar blautt þá myndi ég bæta við svona 30 – 50gr af hveiti. Þegar deigið er búið að hnoðast í vélinni, þá skelli ég því á borðið ásamt smá hveiti og hnoða það aðeins meira með höndunum. Set hveiti í botninn á hrærivélaskálinni og skelli deiginu ofan í, set rakt viskustykki yfir (bleitt með volgu vatni) og geymi á heitum stað. Læt deigið hefast í svona ca. 40 – 50min.

Image

Ég skipti deiginu í 4 hluta og flet hvern og einn út í hringlaga pítsu. Sker síðan eins margar sneiðar og eru í boði, eða svona eins og sést á myndinni hér fyrir ofan. Mér finnst rosalega gott að setja smurost og verður skinkumyrja oftast fyrir valinu. Ég ákvað þó að breyta aðeins til núna og setja skinkumyrju á helminginn af uppskriftinni og prufa síðan að setja pítsasmurost á hinn. (Það var btw geðveikt, kemur hrikalega gott bragð af pítsasmurostinum). Ég byrja s.s. á því að setja smurostinn, síðan kemur skinkan sem ég sker niður í litla þríhyrninga og síðast kemur rifin ostur. Þá er ekkert eftir nema að rúlla þessu upp, skella á bökunarplötu, pensla með eggi og strá yfir smá rifnum osti og sesamfræjum. Hitið ofnin í 200°c og bakið í ca. 10min eða þar til hornin eru orðin fallega gullinbrún.

Image

Verði ykkur að góðu

https://www.facebook.com/erlagudmundsblog

– erlaguðmunds

Súkkulaðibitakökur með kókos.

 

Image

 

Uppskrift:

  • 150gr íslenskt smjör við stofuhita
  • 80gr sykur
  • 200gr púðursykur.
    Þetta er hrært vel saman þar til engir kekkjir eru eftir.
  • 350gr hveiti
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1tsk salt
  • 2tsk vanillusykur
  • 2stk egg
  • 150gr gróft kókosmjöl
  • 150gr súkkulaðidropar frá Nóa Síríus

Byrjið á því að hræra smjörið, sykur og púðursykurin vel saman. Hafið hrærivélina svo á minnsta hraða og bætið við eggjunum, vanillusykrinum og salti og hrærið vel. Þegar þetta hefur blandast vel saman er hveitinu og matarsódanum bætt út í og hrært þar til það er farið að myndast gott deig. Síðast er svo bætt við kókosmjölinu og súkkulaðidropunum.

IMG_20140619_180502Image

Takið fram bökunarplötu og setjið bökunarpappír á. Takið vel fulla teskeið af deigi og setjið á plötuna, ég þrýsti síðan aðeins á þeir áður en þær fóru inn í ofn. Stillið ofnin á 180°c og bakið kökurnar í ca. 7-9min, ég myndi fylgjast vel með fyrsta hollinu til þess að sjá hvað þær þurfa langan tíma því það fer rosalega mikið eftir ofninum sem bakað er í. Þær eiga að vera svona fallega gullinbrúnar og mjúkar í miðjunni. Ég ákvað að bræða dökkan súkkulaðihjúp í potti og bætti smá rjóma út í, til að dýfa kökunum í. Dreifði smá kókos yfir og skellti þeim inn í ísskáp til að leyfa hjúpnum að storkna.

Image

Þessar eru eiginlega einu númeri of góðar með glasi af ísskaldri mjólk eða kókómjólk.
Verði ykkur að góðu

erlagudmunds

 

Bountykaka

Image

Ég er mikill kókosfíkill. Til að mynda fæ ég mér stundum bragðaref með kókos, kókosbollu og bounty. Of mikið hugsa kannski sumir, en ég get sagt ykkur að það er aldrei of mikið af kókos. Ég átti afmæli núna á föstudaginn og treysti ekki á það að Magnús myndi henda í einhverja gúrm ammóköku, þannig ég ákvað að baka uppáhaldskökuna mína sem mamma bjó oft til. Útgáfan hennar mömmu er þó þannig að uppskriftin er tvöföld og bakaðir tveir botnar og settur rjómi á milli. En þar sem ég er ekki rjómatýpan þá sleppi ég honum og hef hann bara til hliðar fyrir þau sem vilja.

Uppskrift:

  • 4 eggjahvítur (geymið rauðurnar fyrir kremið).
  • 200gr sykur
    Þeytið eggjahvíturnar og eggin vel saman, svo þetta verði stífþeitt. 
  • 200gr kókosmjöl
    Síðan er kókosmjölinu bætt varlega út í með hrærivélina á minnsta hraða. 

Þessi uppskrift er einföld, en ef þið viljið baka tvo botna og setja rjóma á milli, þá er best að deila þessari uppskrift í tvö form og þá fáið þið passlega þykka botna fyrir það. Svo getið þið líka tvöfaldað uppskriftina ef þið viljið fá þykka botna. Þetta bakst við 175°c, neðarlega í ofninum og í ca. 18min eða þar til kakan er orðin fallega gullinbrún að ofan.

Image

Krem:

  • 50gr smjörlíki við stofuhita
  • 60gr flórsykur
  • 4 eggjarauður
  • 100gr suðusúkkulaði (brætt í öbbanum með smá rjómagusu út í.

Smjörlíkinu og flórsykrinum hrært vel saman. Ég sigta flórsykurinn út í svo það komi ekki eins miklir kekkjir. Síðan er eggjarauðunum bætt út í, eitt og eitt í einu. Seinast kemur svo bráðið súkkulaðið. Þetta er svo allt hrært saman þar til það er orðið slétt og fínt. Skellið yfir kökuna og skellið inn í ísskáp.

Image

Verði ykkur að góðu

erlagudmunds

Daim muffins

Image

Jæja þá er prófageðveikin loks búin og maður fer að hafa tíma til þess að baka eitthvað af viti. Í vikunni hennti ég í eina uppskrift af Daim muffins, hafði þær í góðri stærð svo ég fengi fáar en stórar. Fann líka uppskrift á netinu af kremi ofan á og prufaði í fyrsta skiptið að búa til krem úr rjómaosti, hafði ekki mikla trú á því í fyrstu, en eftir að hafa verið inn í kæli í smá tíma þá var komið gott bragð. 

Uppskrift

  • 3 egg
  • 2 bollar púðursykur 
    (Sykurinn og egginn eru þeytt vel saman).
  • 2 1/2 bolli hveiti
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt.
  • 1 tappi vanilludropar
  • 200gr smjörlíki
  • 1 dós af Kea karamelluskyri (þynnt smá með mjólk).
  • 100gr saxað suðusúkkulaði 
  • 2-3 stór Daim söxuð
  • 80gr hakkaðar hesilhnetur (má sleppa).

Þessi eru öllu bara möndlað saman og síðan sett í form. Ég fylli formin alveg til þess að fá þær stærri og meira crunchy ofaná. Það þarf ekki endilega að vera krem á þeim, ég bjó það bara til svona upp á skrautið.

Krem

  • 200gr rjómaostur
  • 100gr 70% súkkulaði eða venjulegt
  • 100gr flórsykur.

Byrja á því að bræða súkkulaðið í potti með smá rjómagusu, líka hægt að bræða það yfir vatnsbaði og þá án rjóma. Þegar súkkulaðið er full bráðið þá sigtaði ég flórsykurinn yfir og hrærði vel þar til kremið var orðið slétt og fínt. Síðast er rjómaostinum svo bætt við, til þess að jafna honum alveg þá notaði ég hrærivélina til þess. Þá er það bara klárt á kökurnar. Ég skreytti kökurnar svo með Daim og hesilhnetuflögum. 

Image

Verði ykkur að góðu.

erlagudmunds