Hollt og gott hrökkbrauð

Afsakið bloggleysið, það er bara búið að vera endalaust að gera seinustu daga bæði í skólanum og lífinu. . En ég bæti það upp núna rétt fyrir prófin. 
Ég hef fengið mikla eftirspurn um uppskrift af hrökkbrauði sem ég bý reglulega til, ég er alfarið farin að borða það og alveg sleppt brauði seinustu mánuði, svo gott er það. Þetta er samt uppskrift sem ég fékk frá henni móður minni. Já þeim snilling. Hún er algjörlega mín fyrirmynd í eldhúsinu, það bara klikkar ekkert hjá henni. Ekkert. 

Image

Uppskrift:

  • 3dl sólblómafræ
  • 1dl sesamfræ
  • 1dl haframjöl
  • 1dl hörfræ
  • 2tsk gróft salt (maldon salt)
  • 3 1/2 til 4dl spelt hveiti (fín malað).
  • 2dl vatn
  • 1dl jómfrúar eða ólífuolía.

Aðferð:

Þurrefnunum er öllu hrært saman og síðan er vatninu og olíunni bætt við. Það þarf ekki hrærivél til að búa þetta til, en ég nota bara skál og sleikju. Stillið ofninn á 200°c og blástur eða yfir og undir hita. Setjið bökunarpappír á plötu og deigið á, ég skipti deiginu í fjóra hluta og baka þetta í fjórum hollum s.s.. Mér finnst best að setja bökunarpappír yfir deigið líka og fletja það síðan út með kökukefli. Það er líka hægt að þrýsta deiginu bara niður með höndunum, en mér finnst það oft verða of þykkt hrökkbrauðið þá. Eftir að þið eruð búin að fletja það út þá skeriði það eins og þið ætlið að hafa hrökkbrauðin, mín eru allskonar í laginu. Síðan hendiði þessu inn í ofn og þetta bakast svona í ca. 25 – 30min, best er að fylgjast vel með þeim og taka út þegar þau eru orðin fallega gullinbrún. Þá eruð þið bara komin með gómsæt og holl hrökkbrauð tilbúin til átu. 

Mér finnst voða gott að setja egg á þau og borða sem hádegismat, ég get lofað ykkur því að það er mikill magafyllir. Svo er líka gott að setja kjúllaskinku, gúrku og papriku. Annars ráðið þið því alveg hvað þið setjið á þau, allt sem ykkur þykir gott. 

Image

Verði ykkur að góðu.

– erlagudmunds

Nutellahnetuostakaka.

Image

Í dag fékk ég hrikalega löngun í að baka eitthvað og endaði á því að baka 1 ostaköku, kanilsnúða með karamelluglassúr og hrökkbrauð. Uppskriftir af öllu þessu munu detta hérna inn á bloggið einn daginn, en nú ætla ég að henda inn uppskrift fyrir ostakökunni sem ég ákvað að prufa. Ég rakst á uppskrift frá Nigellu með hesilhnetuostaköku, ég notaði hana í grunninn en breytti smávegis. Ég er ekki ostaköku týpa, en þessi kaka er unaðslega góð. Ég á erfitt með að hætta að borða.

Botn:

  • Heill kassi af LU Bastogne kexinu.
  • 2 tsk nutella
  • 75gr ósaltað íslenskt smjör
  • 3 tsk hakkaðar hesilhnetur

Byrjið á því að henda kexinu í matvinnsluvélina og hakka það vel, síðan má bæta við smjörinu og blanda því vel saman við. Að lokum setjiði hneturnar og nutella smjörið saman við og blandið vel. Síðan er þessu hellt í form og þrýst vel ofan í botninn. Passa að dreifa vel. Síðan hendiði þessu í kælinn og látið bíða þar á meðan að þið sansið kökuna sjálfa eða fyllinguna.

Kakan:

  • 500gr rjómaostur.
  • 80gr flórsykur (sigtaður).
  • 1x dós af Nutella smjöri (ég fór ódýrari leiðina og keypti bara hesilhnetusmjör frá Euroshopper, það er mjög gott).
  • 2stk kókosbollur

Byrjið á því að hræra rjómaostinn og flórsykurinn vel saman. Síðan er nutellanu bætt út í og hrært vel. Ég ákvað að setja kókosbollur út í líka, sjá hvernig það kæmi út, það var btw hrikalega gott. Hrærið þeim vel saman við allt saman. Takið síðan botnin út úr ísskápnum og hellið þessu yfir og dreifið vel. Þetta á að vera inn í ísskáp í svona 4klst eða yfir nótt, en ég flýtti aðeins fyrir með því að henda þessu í frystinn í smá tíma. Tók þetta út eftir ca. 1 1/2klst og setti kökuna þá á disk og skreytti með hesilhnetuflögum og kókosflögum.

Image

Ég mæli hiklaust með þessari sem eftirrétt eða bara með sunnudagskaffinu, hún er alltof góð.

Image

Verði ykkur að góðu.

– erlagudmunds

Oreokaramellu múffur m/ nutella kremi.

Image

Um daginn ákvað ég að baka einhverja bombu fyrir nammidaginn. Ég held það hafi ekki farið framhjá neinum sem les þetta blogg að ég elska Oreo kex en það varð einmitt fyrir valinu fyrir nammidaginn. Mig langaði líka rosalega að prufa að setja karamellu í köku og keypti ég Caramel Milka súkkulaðið (sem er bara of gott) og setti það í múffurnar líka. Þessi blanda var eiginlega bara einu númeri of góð og mæli ég eindregið með því að skella í þessar múffur ef ykkur langar í smá sælgæti. Ég byrjaði á því að gera súkkulaðiköku uppskrift, þið megið í raun nota hvaða uppskrift sem þið viljið, bara þá sem ykkur finnst best. En ég hendi minni uppskrift hérna inn líka.

Uppskrift:

  • 300gr hveiti
  • 3msk kakó
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1 tsk lyftiduft
  • 250gr sykur
  • 100gr smjörlíki (bráðið)
  • 250ml ab mjólk
  • 2 egg
  • 2 kassar af hreinu Oreo
  • 200gr caramel milka

Blöndum öllum þurrefnunum saman fyrst og síðan setjum við smjörlíki, ab mjólk og eggin út í. Hrærum þetta vel saman. Síðan setti ég muffins form ofan í bökunarform sem er fyrir muffins og setti botnfyllir af deiginu með tsk. Svo setti ég Oreo kexköku ofan á það og þrýsti því ofan í, aftur smá deig yfir kexið. Síðan setti ég caramel súkkulaðibita ofan á það og síðan smá deig yfir o.s.fr. S.s. fyrst smá deig, síðan Oreo kex, smá deig, caramel og smá deig. Þarf ekki endilega að setja deig ofan á karamelluna, skiptir bara mestu máli að oreo kexið sé þakið deigi.

Image

Þetta bakast við 200°í ca. 15-20min, myndi prufa að stinga í með gaffli þegar 15min eru komnar og ef ekkert kemur upp með gafflinum þá eru þær klárar. Þegar búið er að taka þær út úr ofninum þá setti ég þær út í glugga og kældi þær þar á meðan að ég bjó til kremið.

Krem:

  • 170gr íslenskt smjör (við stofuhita)
  • 6 msk nutella
  • 1 msk kakó
  • 2 1/2 msk flórsykur
  • 2-3 tsk vanillusykur
  • 1-2 msk sýróp
  • 6stk muldar oreokexkökur

Hrærið smjörið, nutellað, flórsykurinn og sýrópið vel saman og bætið síðan hinu út í og hrærið vel. Síðan er bara að skella þeim á múffurnar þegar að þær eru búnar að kólna og síðan skar ég Oreo kex til helminga og skreytti með.

Image

Image

Mér fannst þær betri eftir að ég hafði geymt þær inn í ísskáp yfir nóttina.
Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt og mæli ég alveg hiklaust með þessari uppskrift 🙂
Verði ykkur að góðu.

– erlagudmunds

Hollustunammi.

Ég er soldill sælkeri og fæ oft krave í eitthvað sætt til að narta í á kvöldin. Svo það yrði nú ekki heilt pippsúkkulaði eða oreosúkkulaðið frá milka (sem er btw to die for), þá ákvað ég að möndla eitthvað nammi í hollari kantinum. Setti eiginlega allt hollt sem ég átti til í matvinnsluvélina, bræddi súkkulaði í kókosolíu og úr varð sjúklega gott hollustunammi.

Image

Uppskrift:

  • 1 bolli möndlur með hýði. 
  • 1 bolli hesilhnetur.
  • 1 bolli kókosflögur
  • 1 1/2 bolli döðlur
  • 2msk kakó
  • 2-3msk gróft hnetusmjör (frá Sollu).
  • 1 1/2msk hunang

Ég byrjaði á því að hakka döðlurnar og taka þær síðan til hliðar á meðan ég hakkaði hesilhneturnar og möndlurnar saman. Síðan blandaði ég döðlunum og restinni út í og blandaði þessu vel saman. Svo tók ég ferhyrningslagað box og þjappaði öllu og dreifði vel í botninn. Dreifði síðan smá súkkulaði ofan á. 

ImageImage

 

Image

Ofan á: 

  • 2tsk kókosolía
  • 70gr 70% súkkulaði
  • 2 dropar af piparmyntu steviu (þarf alls ekki).

Síðan bræddi ég þetta saman í potti við vægan hita og hellti síðan yfir alla kökuna í boxinu og skellti þessu í frysti. Myndi láta þetta vera í svona klst í frysti áður en þið fáið ykkur smakk því þá er súkkulaðið og kakan orðin föst saman. Ég losaði þetta úr forminu og skar í nokkra bita svo ég gæti alltaf nappað einum mola þegar mig langaði í, sem er svona á 10min fresti 😉

Image

 

Image

Verði ykkur að góðu 🙂

– erlagudmunds

Blómkálspítsa. .

Ég held það fari ekki framhjá neinum sem þekkir mig að ást mín á pítsu er hættuleg, ég gæti verið með þetta í æð skulum orða það þannig. . Heimatilbúnupítsurnar eru alltaf bestar finnst mér, þá getur maður sett hvað sem maður vill og eins mikið af því og maður vill ! Ég ákvað samt um daginn að prufa að gera pítsu úr svona blómkálspítsabotn þar sem ég er að reyna að halda mér í hollustunni. Ég hafði ekki mikla trú á því að þetta yrði gott, ég meina þetta er pítsa úr blómkáli, en mikið hafði ég rangt fyrir mér því hún var hrikalega góð. Fann uppskrift á netinu en ég ákvað að nota hana í grunninn og leika mér síðan aðeins en hér er uppskriftin eins og ég geri hana.

Uppskrift.

  • 1 poki frosið blómkál – Ef þið notið ferskt, þá er nóg að rífa niður hálfan haus.
  • 1 egg
  • 1 bolli rifin pizzaostur – Mér finnst líka gott að rífa niður mexíkóost með og setja þá 50/50.
  • 1 1/2 tsk marin hvítlaukur
  • 2 tsk hvítlauksjurtablanda frá Pottagöldrum (Fæst í Hagkaupum allavega).
  • 3 tsk pizzakrydd frá Prima (Fæst í Bónus).
  • 2 tsk Oregano
  • Dass af svörtum pipar.
  • 1/2 tsk sjávarsalt (Maldon eða eitthvað annað).
  • 1 msk möndlumjöl (má sleppa).

Image

 S.s. einn svona poki af blómkáli, hann fæst í Bónus og kostar einhverjar 140kr minnir mig.

Image

Ég byrja á því að afþýða blómkálið í örbylgjuofninum og skelli því svo í matvinnsluvélina. Ég á svo lítin og krúttlegan töfrasprota þannig ég þurfti að hakka blómkálið í þrem hollum og setti síðan í stóra skál. Í hana bætti ég svo öllu gumsinu og hrærði með sleif. Þegar það var komið þá setti ég bökunarpappír á plötu og flatti út botninn með höndunum, skellti botninum inn í ofn á blástur og 200°í ca. 15min. Tók hann síðan út og setti það sem mig langaði í á pítsuna, ég set alltaf ostin undir svo að áleggið soðni ekki og síðan setti ég kjúklingaskinku, sveppi, papriku, svartan pipar, oregano og smá hvítlauksolíu og aftur inn í ofn þar til osturinn er bráðnaður. Síðan er hún bara tilbúin, mæli með að þið notið ostaskera eða spaða til þess að ná henni af plötunni, botninn er linur.

Image

 Botninn búin að bakast í 15min.

Image

Áður en hún fór inn í ofn.

Image
Þegar hún var tilbúin.

Ég mæli eindregið með svona pítsu, alveg jafn góð og þessi klassíska með brauðbotni, bara hollari.

– erlagudmunds

 

Unaðsleg frönsk súkkulaðikaka.

Image

Mamma átti 49 ára afmæli í gær og bauð hún í matarveislu í sveitinni. Í tilefni þess ákvað ég að baka frönsku súkkulaðikökuna mína sem ég hef alltaf gert fyrir veislur. Mér finnst hún alltaf jafn góð og klárast hún nú alltaf, bróðir minn sér um það en honum finnst þessi kaka alls ekki vond.

Uppskrift:

  • 4stk egg
  • 2dl sykur
  • 200gr íslenskt smjör
  • 200gr súkkulaði (hvernig súkkulaði sem þið viljið, suðu-, 70% eða janfvel piparmyntu súkkulaði).
  • 1dl hveiti (ég set samt hálfan til þess að hafa hana aðeins blautari).

Aðferð:
Þeytið sykurinn og eggin vel saman, þangað til að deigið er orðið smá „fluffy“.
Á meðan að sykurinn og eggin eru að þeytast er gott að byrja að setja smjörið og súkkulaðið saman í pott og bræða við vægan hita. Þegar að eggin og sykurinn eru tilbúin þá er hveitinu bætt við og þar á eftir er bráðnaða smjörsúkkulaðiblandan bætt varlega við, með hrærivélina á minnsta hraða.
Þegar að allt er orðið vel hrært saman er deiginu hellt í vel smurt form og bakað við 170°í ca. 25min.

Súkkulaði ofan á:

  • 75gr íslenskt smjör
  • 150gr súkkulaði
  • dass af sýróp.

Síðan skreytiði bara að vild. Mæli eindregið með að borða kökuna volga með ís eða jafnvel rjóma.
Verði ykkur að góðu.

Image

– erlagudmunds

 

Mömmuhafrakökur

Ég elska hafrakökur og eru þær svona mitt „guilty pleasure“. Ég hef prufað margar tegundir en ég held að uppskriftin hennar mömmu sé sú allra besta sem ég hef smakkað. Ég stal henni um daginn og henti í eina uppskrift í kvöld, svo þær eru volgar og mjúkar, mér finnst þær bestar þannig.

Uppskrift:

  • 250gr smjörlíki (mjúkt).
  • 1 bolli sykur.
  • 1 bolli púðursykur.
  • 2 egg.

Þessu öllu er hrært vel saman áður en hinu er bætt út í. Þegar það er búið er bætt út í:

  • 2 bollar hveiti.
  • 2 bollar haframjöl
  • 2 bollar mulið kornflex (nóg að mylja í höndunum).
  • 1 bolli kókosmjöl.
  • 1 tappi vanilludropar.
  • 1 tsk matarsódi.
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk lyftiduft.
  • 100gr súkkulaði (ég set 70% en suðusúkkulaði er líka gott).
  • 2 tsk kakó.

Þessu öllu blandað svo vel saman, ég bætti kakó við uppskriftina því ég elska kakó og vildi hafa þær aðeins dekkri, en það þarf ekki. 

Þegar þetta er búið að blandast allt vel saman þá setjum við bökunarpappír á plötur og búum til kúlur. Stærðin á þeim fer eiginlega bara alveg eftir því hversu stórar þið viljið hafa kökurnar. Ég gerði svona meðalstórar, hafði gott bil á milli þeirra því þær leka smá.

Image

Þær eru síðan bakaðar við 180°á blæstri í svona 7- 8 mínútur.
Ég er svo mikill sælkeri að ég setti smá súkkulaði ofan á

Súkkulaði:

  • 100gr síríus konsúm orange
  • smá rjómasletta (botnfyllir ca.)
  • smá sýróp.

Image

Ég mæli með að borða þær þegar þær eru volgar og mjúkar, með ísköldu glasi af mjólk (eða kókómjólk fyrir gikki eins og mig).

Image

Verði ykkur að góðu.

– erlagudmunds

Oreonuetellasúkkulaðikaka.

Jæja þá ákvað ég loksins að verða að því og byrja með matarblogg. Prufa það allavega. Sjáum svo hvað setur.

Ég er búin að vera með oreosúkkulaði crave alla vikuna og í gær ákvað ég að henda í eina súkkulaðibombu. Ég vara ykkur við ef þið ákveðið að búa hana til, þá eigi þið vona á nettu sykursjokki. En ég elska oreo svo mér fannst hún sjúklega góð.
Ég fann uppskrift af mjúkri súkkulaðiköku og blandaði svo bara öllu því sem mig langaði í út í. 

IMG_20140319_222119~2

Uppskrift:

  • 300 gr hveiti
  • 250 gr sykur (setti smá púðursykur með).
  • 100 gr kakó (einn bolli).
  • 1msk matarsódi
  • 1 1/2 bolli olía
  • 3 egg
  • 1 tappi vanilludropar
  • 1/2 tsk sjávarsalt
  • 150gr Ab mjólk (1 og 1/2 bolli)
  • 1 kassi af Oreo kexi (m/súkkulaði/hvítusúkkulaði/eðaengu súkkulaði, þið ráðið). Því meira Oreo því betra, finnst mér.
  • 4msk nuetellasúkkulaði (setja það inn í örbygljuofn í smá stund svo það bráðni pínu).

Blandið öllum þurrefnunum saman, hveiti, sykur, kakó, matarsódi og salt. Bætið síðan olíu, ab mjólk og vanilludropum út í og hrærið vel. Þar næst bætiði eggjunum einu og einu út í, á meðan að deigið hrærist á litlum hraða. Næst er bráðið nuetella sett út og hrært vel. Síðan er það rúsínan í pylsuendanum,oreokexið, saxið það eins smátt og þið viljið, bætið því síðan út í þegar búið er að hræra allt vel saman. 

Skiptið í tvö jafn stór form og bakist á blæstri í 180°, í svona ca. 25-30min. Ég bakaði mína í 27min, fer allt eftir ofnum. Stingið bara gaffli í miðjuna og ef ekkert kemur upp með, þá er hún klár !
Látið hana kólna smá áður en að krem er sett á.

Krem:

  • 6msk bráðið nuetella
  • 3msk flórsykur
  • tappi vanilludropar
  • smá kaffi.

Ef kremið er of þurrt, þá bætiði bara meira nuetella við, aldrei nóg af því.
Ég setti krem í millið og stráði smá meira oreo þar, síðan setti ég efri botnin á og makaði alla kökuna í kremi. Því næst bræddi ég marssúkkulaði með smá rjómaslettu í potti, við vægan hita. Lét það kólna smá og skreytti kökuna með því. Einnig skreytti ég kökuna með meira af oreokexi (surprise) og toppaði hana með jarðaberjum.

Ég mæli með að þeyta rjóma með kökunni eða jafnvel bara hafa ís með. Svo toppað með íssköldu mjólkurglasi.

IMG_20140319_222353~2

Verði ykkur að góðu.

– Erla